|
Lög félags íslenskra fótaaðgerðafræðinga |
FÉLAG ÍSLENSKRA FÓTAAÐGERÐAFRÆÐINGA
Stofnað 26. október 1996
1. grein. Heiti - Heimili - Hlutverk. Heiti félagsins er Félag Íslenskra Fótaaðgerðafræðinga, skammstafað FÍF. Lögheimili þess og varnarþing er í Reykjavík. Félagið er sjálfstæður skattaðili. Félagið er fagfélag þeirra fótaaðgerðafræðinga, sem starfsleyfi hafa hér á landi.
2. grein. Markmið. Markmið félagsins eru: 1. Að efla samheldni fótaaðgerðafræðinga á Íslandi. 2. Að gæta hagsmuna fótaaðgerðafræðinga og vera í forsvari fyrir stéttina gagnvart öðrum aðilum. 3. Að stuðla að símenntun félagsmanna og efla áhuga þeirra á að viðhalda þekkingu sinni og að tileinka sér nýjungar. 4. Að glæða félagslegan áhuga og stuðla að tengslum við hliðstæð félög erlendis. 5. Að kynna störf fótaaðgerðafræðinga út á við og hvetja til samstarfs við aðrar heilbrigðisstéttir. 6. Að gæta virðingar fótaaðgerðafræðinga.
3. grein. Félagsmenn. 1. Félagar geta þeir einir orðið, sem hlotið hafa leyfisbréf heilbrigðisráðherra. 2. Umsókn um inngöngu í félagið skal vera skrifleg á þar til gerðum eyðublöðum félagsins ásamt leyfisbréfi og prófvottorði. 3. Skuldlausir félagar í Félagi Fótaaðgerðafræðinga og Félagi Íslenskra Fótafræðinga verða sjálfkrafa félagar í FÍF við stofnun þess, nema þeir sæki skriflega um úrsögn úr fyrrnefndum félögum fyrir stofnun FÍF. 4. Umsækjandi skuldbindur sig til að hlýta lögum og samþykktum félagsins á hverjum tíma. 5. Nýir félagar eru teknir í félagið á félagsfundum og greiða þá inntökugjald. 6. Hafi félagi ekki greitt félagsgjald í tvö ár er honum vikið úr félaginu, en hann getur gerst félagi að nýju með því að greiða gjaldfallin félagsgjöld innan tveggja ára. 7. Félagi, sem ekki starfar við fagið eða er búsettur erlendis getur sótt um leyfi frá félaginu. Hann fær sent fréttabréf og hefur rétt á að sækja félagsfundi, en missir önnur félagsleg réttindi. Hann greiðir 25% af félagsgjöldum 8. Félagsmenn 67 ára og eldri eru undanþegnir greiðslu félagsgjalds, nema þeir séu enn starfandi. 9. Félagsmanni er ekki heimilt að taka að sér nema eða einstakling í starfsþjálfun á fótaaðgerðastofu. (8.okt.2005)
4. grein. Réttindi og Skyldur. Félagar eiga rétt á : 1. Að sitja félags og aðalfundi. 2. Að sækja námskeið á vegum félagsins. 3. Að hafa atkvæðis og tillögurétt. 4. Að fá sent fréttabréf, endurgjaldslaust. 5. Að hafa stuðning stjórnar og félags ef fagleg eða félagsleg vandamál koma upp.
Félögum ber skylda til: 6. Að sýna árvekni og trúmennsku í starfi. 7. Að gæta þagmælsku um vitneskju í starfi sínu og leynt skuli fara samkvæmt lögum eða eðli málsins. Sérhver fótaaðgerðafræðingur ber ábyrgð á þagnarskyldu síns starfsliðs. 8. Að sýna félaginu og félagsmönnum virðingu og hollustu. Félögum er óheimilt í orði eða athöfn að vega að starfsheiðri annarra félagsmanna. 10. Að tilkynna til stjórnar opni félagsmaður eigin fótaaðgerðastofu. Með tilkynningunni skal fylgja ljósrit af rekstrarheimild heilbrigðiseftirlits. Aðrir félagar skulu tilkynna hvar þeir starfa að faginu hverju sinni.
5. grein. Aðalfundur. 1. Aðalfundur hefur æðsta vald í öllum málum félagsins. Skal hann haldinn í október ár hvert. Aðalfund skal boða bréflega með a.m.k. tveggja vikna fyrirvara. Tillögur frá félagsmönnum, sem þurfa samþykki aðalfundar, skulu hafa borist stjórn eigi síðar en 15. september ár hvert. Dagskrá fundarins skal birta í fundarboði og þar getið tillagna, er þurfa samþykki aðalfundar. 2. Aðalfundur er löglegur sé rétt til hans boðað. 3. Á aðalfundi skal tekið fyrir: a. Ársskýrsla formanns b. Rekstrarskil gjaldkera. c. Skýrslur nefnda. d. Lagabreytingar. e. Kjör stjórnar og reikningsskoðunarmanna. f. Kjör í nefndir: 1) fræðslu- og kynningarnefnd, 2) siðanefnd, 3) ritnefnd, ásamt fleiri nefndum, sem stjórn telur þörf á hverju sini. g. Önnur mál.
6. grein. Stjórn og nefndir. 1. Í aðalstjórn skulu kosnir 5 menn; formaður, varaformaður, ritari, gjaldkeri og einn meðstjórnandi. Einnig skal kjósa tvo varamenn. Kjósa skal 3 stjórnarmenn í fyrsta sinn til eins árs. Síðan á víxl fjóra og þrjá til tveggja ára. Eftir fyrsta árið gangi úr stjórn; formaður,gjaldkeri og einn varamaður. Kosning skal vera leynileg. 2. Hverjum félagsmanni er skylt að taka kosningu til hvers konar félagsstarfa, nema gild forföll hamli. 3. Varamönnum er skylt að sitja stjórnarfundi til jafns við aðalstjórn. 4. Kjósa skal 2 reikningsskoðunarmenn til tveggja ára í senn. 5. Stjórnar og nefndarmönnum er óheimilt að kenna sig við stjórnar eða nefndarstörf í eigin þágu, en heimilt er að kenna sig við félagið. 6. Kjör í nefndir skulu vera eftirfarandi: Í fræðslu og kynningarnefnd eru kosnir 5 fulltrúar, í siðanefnd eru kosnir 3 fulltrúar og í ritnefnd eru kosnir 3 fulltrúar. Nefndamenn eru kosnir til þriggja ára í senn og gilda víxlkosningar þannig að aldrei gangi meirihluti úr nefnd í einu. Fulltrúa í nefnd má endurkjósa einu sinni. Nefnd skipar formann og skulu formenn nefnda að jafnaði sitja stjórnarfundi og hafa þar tillögurétt. Stjórn hefur yfirumsjón með öllum framkvæmdum félagsins. Ber henni að hafa sem gleggst yfirlit yfir störf allra nefnda og er verndari félagsmanna. Til hennar ber að leita með faglegar og félagslegar fyrirspurnir eða vandamál, sem upp kunna að koma. Stjórn er heimilt að leita til nefnda eða annarra félagsmanna með ákveðin verkefni ef þurfa þykir í þágu félagsins.
7. grein Starfssvið nefnda. A. Starfssvið fræðslu og kynningarnefndar er: 1. Að stuðla að aukinni menntun félagsmanna með því að standa fyrir fyrirlestrum og námskeiðum hérlendis og kynna þau námskeið og fyrirlestra, sem til boða standa erlendis. 2. Að vinna að stofnun skóla hérlendis. 3. Að auka þekkingu annarra heilbrigðisstétta og félagasamtaka með kynningu á starfi fótaaðgerðafræðinga. B. Starfssvið ritnefndar er m.a. að annast útgáfu fréttabréfs. C. Starfssvið siðanefndar er : 1. Að fylgjast með að félagsmenn framfylgi lögum félagsins. 2. Að varna því að brotið sé faglega, lagalega eða siðferðislega á félagsmönnum FÍF. 3. Að taka á félagslegum, faglegum og siðferðislegum vandamálum, sem upp kunna að koma innan félagsins. 4. Siðanefnd setur eigin starfsreglur í samvinnu við stjórn og skulu þær birtar félagsmönnum. Allar nefndir skulu starfa sjálfstætt með samþykki stjórnar og skila ársskýrslu á aðalfundi ásamt því að kynna drög að starfsemi sinni á komandi ári.
8. grein. Alþjóðlegur samskiptafulltrúi. FÍF er aðili að Norrænum samtökum og einnig alþjóðasamtökum fótaaðgerðafræðinga, Federation Internationale des Podologues , sk.st. FIP. 1. Kjósa skal 1 fulltrúa til tveggja ára í senn til að annast alþjóðleg tengsl, sitja fundi og ráðstefnur, sem stjórn metur hverju sinni. 2. Stjórn er heimilt að tilnefna að auki annan fulltrúa til að sitja þessa fundi og skal það metið hverju sinni. 3. Félagið greiðir útlagðan kostnað fyrir fulltrúa sína en ekki vinnutap eða aðrar launagreiðslur. Fulltrúar skulu skila skriflegri skýrslu um efni fundanna til stjórnar.
9. grein. Atkvæðisréttur. Allir skuldlausir félagar hafa tillögu og atkvæðisrétt á félagsfundum og hefur hver félagi eitt atkvæði. Undantekning frá þessu eru félagar í leyfi frá félaginu, er greiða 25% af félagsgjaldi.
10. grein. Gerðabók. Um það sem gerist á stjórnar og félagsfundum skal haldin gerðabók.
11. grein. Landshlutadeildir. Heimilt er með samþykki aðalfundar að stofna til landshlutadeilda innan félagsins. Markmið þeirra deilda skal vera að starfa samkvæmt lögum félagsins og senda skýrslur að loknum fundum til stjórnar FÍF
12. grein. Auglýsingar. Fótaaðgerðafræðingi er óheimilt að auglýsa starfsemi sína. Þó má í þrígang birta látlausa tilkynningu um opnun stofu eða flutning. Einnig vegna sumarleyfa eða langvarandi forfalla.
13. grein. Félagsmerki. Félagsmerki er eign félagsins og skal vera barmmerki númerað á baki. Félagsmenn skulu bera félagsmerkið meðan þeir gegna störfum. Enginn hefur rétt til að bera merki félagsins nema sá sem gengið hefur í félagið með löglegum hætti. Greiða skal eitt leigugjald , sem ákvarðast hverju sinni. Ekki er hægt að krefjast endurgreiðslu á þessu gjaldi. Halda skal skrá um nöfn og númer þeirra félaga er merki bera. Skylt er að skila merkinu við brotthvarf úr félaginu eða andlát til stjórnar FÍF.
14. grein. Heiðursfélagar. Heiðursfélaga getur félagið gert fótaaðgerðafræðing eða hvern þann velunnara félagsins, er það álítur að sýna beri sérstaka viðurkenningu. Það skal samþykkt á aðalfundi með ¾ greiddra atkvæða.
15. grein. Tilnefningar. Tilnefningar í stjórnar og nefndastörf skulu hafa borist til stjórnar FÍF eigi síðar en þremur dögum fyrir aðalfund
16. grein. Úrsögn. Skriflega úrsögn úr félaginu skal senda stjórn þess enda sé félagi skuldlaus við félagið. Brottrekstrartillögu skal geta í fundarboði. Félaga verður ekki vikið úr félaginu nema á félagsfundi. Þarf til þess 2/3 greiddra atkvæða. Undantekning frá þessari reglu er þegar félagsmanni er vikið úr félaginu vegna skulda á félagsgjöldum sbr. 3 grein, liður 6.
17. grein. Reikningstímabil. Reikningsár félagsins er frá 1. september til 31. ágúst Árgjald félagsins er ákveðið á aðalfundi og greiðist í tveimur hlutum. Gjaldagar eru 1. febrúar og 1. júlí.
18. grein. Lagabreytingar. Lögum þessum má aðeins breyta á aðalfundi, þarf til þess 2/3 greiddra atkvæða.
19. grein. Lög þessi öðlast þegar gildi.
23. oktober 1999.
|